Jæja þá er maður kominn aftur uppá Laugarvatn. Ég fór semsagt
heim á patró um helgina á sælkerakvöld... Ég, Anna, Kolla, Elva og
Karen fórum vestur eftir skóla á fös. Þegar við komum á Patró fórum
við eiginlega strax á generalprufu, leikfélagið var að sýna Línu
Langsokk. Leikritið var mjög skemmtilegt og Tanja Teresa var að
leika Línu, hún var alveg æðisleg.
Á laugardaginn fórum við svo á sælkerakvöldið, maturinn byrjaði
klukkan 8 og voru einhverjir óperusöngvarar að skemmta, þeir voru
mjög góðir... Eftir matinn fórum við heim og drukkum okkur aðeins
til fyrir ballið. Kristín Brynja og vinkonur hennar kíktu líka heim
fyrir ballið, svaka stuð á okkur þar. Uuu svo var farið á ballið og
það var bara mjög gaman en hljómsveitin var nú ekkert rosalega góð.
Svo fóru einhverjar sænskar stelpur sem eru víst systur að slást og
lætin í kringum það... Já það var frekar fyndið sko..... Uuuu ekki
er mikið um slúður eftir þetta ball og verð ég því að valda Siggu
Gunnars vonbrigðum
Uuu þegar ballið var að klárast fór
mín uppá svið að dansa og spila á trommur en mér var fljótlega hent
niður...
Eeeen ég ætla að enda þessa færslu þar sem taflan er orðin full
af orðum sem ég þarf að glósa, er nefninlega í þýskutíma.... Já það
er gaman hjá mér
Eeen ég ætla að henda nokkrum myndum hérna en þær koma fleiri
seinna þegar Lilja hefur tíma til að setja þær á netið...

Séra Leifur, Dóra og Lilja 

Ég og mamma 
">
Maja og Dóra gellur
">
Binni og Anna

Kristín Brynja og Rakel Loga
">
hehehehe

Ég, Anna og Kolla

Ég orðin svolítið full hehe

...................
Já það koma fleiri myndir inn seinna 
bæbæ